Samtal við forsætisráðherra um Sjálfbært Ísland – fundur í Borgarnesi á mánudaginn

Mánudaginn 24. apríl klukkan 16-17:30 mun Katrín Jakobsdóttir halda fund í Hjálmakletti í Borgarnesi. Forsætisráðherra býður þessa dagana til opinna samráðsfunda um landið og fjallar um sjálfbæra þróun á Íslandi. Á fundinum verður fjallað um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara en vinna stendur yfir við mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun. Skráning fer fram á www.sjalfbaertisland.is Allir er velkomnir.

Dagskrá (Stutt ávörp, 30 mínútur):

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Opnunarávarp

Stefán Gíslason, stofnandi og eigandi Environice

Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun hjá HÍ

Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi Sjálfbærs Íslands

(Umræðuhópar, 1 klukkstund) Fundargestum er síðan skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni og mun forsætisráðherra taka þátt í umræðuhópunum. Boðið verður upp á hressingu á fundinum.

Fundarstjóri: Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans á Bifröst

Samtal við forsætisráðherra um Sjálfbært Ísland - fundur í Borgarnesi á mánudaginn - Skessuhorn