Fréttir

true

Hér getur þú lesið Skessuhorn vikunnar

Skessuhorn óskar Vestlendingum gleðilegs sumars! Í ljósi þess að frídagur var í gær, og enginn póstur borinn út þann daginn hjá Íslandspósti, hefur prentútgáfa Skessuhorns ekki enn borist til hluta áskrifenda og óvíst hvort það náist fyrir helgina. Til að bregðast við því býður Skessuhorn lesendum að nálgast rafræna útgáfu af blaðinu á PDF-formi með…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði og er kominn upp við vegg

Hamar og Skallagrímur mættust í þriðja leik í úrslitaeinvíginu um sæti í Subway deild karla í körfuknattleik á miðvikudagskvöldið og var leikurinn í Frystiklefanum í Hveragerði. Staðan var jöfn 1-1 eftir fyrstu tvo leikina og ljóst að liðið sem myndi ná sigri í þessum leik væri kominn vel ofan á í þessu hörku einvígi. Það…Lesa meira

true

Brýrnar á Skógarströnd að taka á sig mynd

Framkvæmdir við brýrnar yfir Dunká og Skraumu á Skógarströnd hafa gengið vel að undanförnu. Borgarverk er verktaki við framkvæmdirnar en auk brúargerðarinnar er 5,4 km kafli Skógarstrandarvegar endurnýjaður í þessum áfanga. Brúin yfir Skraumu er 43 metra löng en yfir Dunká er hún 52 metrar. Verklok við framkvæmdirnar voru í upphafi framkvæmda áætluð nú í…Lesa meira

true

Guðrún Halla er nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Norðuráls

Guðrún Halla Finnsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Norðuráli og mun m.a. leiða vinnu við raforkusamninga fyrirtækisins. Guðrún Halla hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2016, en þar áður starfaði hún hjá raforkufyrirtækinu Southern California Edison í Los Angeles. Hún er með Bsc gráðu í aðgerðarannsóknum með áherslu á fjármálaverkfræði frá Columbia háskóla…Lesa meira

true

Vel heppnuð sýning FVA á Hlið við hlið

Leiklistarklúbburinn Melló frumsýndi á laugardaginn söngleikinn Hlið við hlið í Bíóhöllinni á Akranesi en hann er byggður á lögum eins vinsælasta poppara landsins Friðriks Dórs. Söngleikurinn fjallar um borgarstrákinn Dag sem fær sumarvinnu á sveitahóteli þar sem allt er eins og það hefur verið í áraraðir. En koma hans virðist þrýsta tengslum fólks á hótelinu…Lesa meira

true

Jörvagleði í Dölum – MYNDASYRPA

Jörvagleðin stendur nú sem hæst en henni líkur á sunnudaginn. Hátíðin var sett í Árbliki á síðasta vetrardag þar sem fjölbreytt atriði voru á dagskrá. Félagar í Glímufélagi Dalamanna voru með glímusýningu, tónlistarfólk úr Héraði og víðar sungu og spiluðu og fjallað var um Ásmund Sveinsson myndhöggvara en fyrr um daginn var afhjúpað listaverk eftir…Lesa meira

true

Aðalmót Sjóskip hófst í morgun

Í morgun hófst aðalmót Sjóstangveiðifélags Skipaskaga á Akranesi. Mótsetning var rafræn í gærkvöldi en haldið var til veiða um klukkan níu í morgun en veitt verður til klukkan 16. Klukkan sex í fyrramálið verður haldið að nýju til veiða og veitt til klukkan 13. Lokahóf og verðlaunaafhending fer síðan fram á Grjótinu Bistro bar annað…Lesa meira

true

Rútubílsstjóri hugðist stytta sér leið með hörmulegum afleiðingum

Eftir hádegið á síðasta vetrardag varð alvarlegt umferðarslys í Skagafirði. Ökumaður hópferðabifreiðar, með 13 erlenda ferðamenn auk íslensks leiðsögumanns um borð, hugðist stytta sér leið og ók yfir gamla trébrú sem liggur yfir Húseyjarkvísl, skammt frá Saurbæ í Skagafirði, með þeim afleiðingum að brúin gaf sig og rútan skall á hliðina niður í ána. Talið…Lesa meira

true

Hoppað um Hólminn

Í gær, á sumardaginn fyrsta, skrifaði Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms undir samstarfsyfirlýsingu um stöðvalausa rafskútuleigu í Stykkishólmi. Rafskútuleigan Hopp hóf í framhaldinu þjónustu sína í Stykkishólmi. Hopp býður upp á skammtímaleigu á rafskútum/rafdrifnum hlaupahjólum. Markmið sveitarfélagsins með þessu er að auðvelda íbúum og gestum að komast ferða sinna með umhverfisvænum hætti. Að…Lesa meira

true

ÍA og Kári úr leik í Mjólkurbikarnum

Skagamenn mættu Keflvíkingum í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu síðasta miðvikudag og fór leikurinn fram í miklu roki á gervigrasvellinum við Nettóhöllina í Reykjanesbæ. Skagamenn byrjuðu betur og áttu skot í stöng eftir aukaspyrnu strax á annarri mínútu og Gísli Laxdal Unnarsson átti síðan skot í slána á 20. mínútu en markalaust í hálfleik.…Lesa meira