Anna María og Jóel Þór sem Sísí og Dagur. Ljósm. vaks

Vel heppnuð sýning FVA á Hlið við hlið

Leiklistarklúbburinn Melló frumsýndi á laugardaginn söngleikinn Hlið við hlið í Bíóhöllinni á Akranesi en hann er byggður á lögum eins vinsælasta poppara landsins Friðriks Dórs. Söngleikurinn fjallar um borgarstrákinn Dag sem fær sumarvinnu á sveitahóteli þar sem allt er eins og það hefur verið í áraraðir. En koma hans virðist þrýsta tengslum fólks á hótelinu að þolmörkum. Skyndilega er sem öll fjölskyldutengsl, sambönd og vinskapur hangi á bláþræði eins og segir í leikskrá.

Blaðamaður fór á föstudaginn á general prufu á söngleiknum ásamt tveimur börnum, 9 og 13 ára, og skemmtum við okkur konunglega. Hlið við hlið heldur góðum dampi í tvo tíma og þó sagan sé frekar einföld, enda byggð í kringum lög Friðriks Dórs, er sýningin fyndin, fjörug og góð skemmtun. Aðalhlutverkið er í höndum Jóels Þórs Jóhannessonar sem leikur vel hinn óframfærna og lítt lífsreynda Dag og túlkar hann á trúverðugan hátt. Anna María Sigurðardóttir leikur kærustuna hans sem heitir Sísí og þó hlutverk hennar sé ekki stórt þá er Anna María söngstjarna sýningarinnar. Hún er afar efnileg söngkona, syngur mjög vel og sló ekki feilnótu í flutningi sínum. Björk Davíðsdóttir og Helgi Rafn Bergþórsson leika Höllu og Hvata og fóru á kostum í sínum leik, smá ýkt en fyrir vikið fengu þau flest hlátrasköllin og áttu þau vel skilið. Rósa Kristín Hafsteinsdóttir leikur hótelstýruna Grímu og lét vel á sér bera og í sér heyra þegar hún var á sviðinu og átti setningu kvöldsins sem vakti mikla kátínu. Gunnar Smári Sigurjónsson leikur barþjóninn Grjóna og fór létt með og sama má segja um þau Heklu Kristleifsdóttur og Júlíus Alexander Rúnarsson í hlutverki Evu og Rikka, þau voru áreynslulaus eins og reyndar allur leikhópurinn. Leikgleðin og öryggið skein úr hverju andliti sem skilaði sér vel til áhorfenda og ekki að sjá neina taugaveiklun á leikhópnum nánast alla sýninguna.

Leikstjórinn Einar Viðarsson heldur vel um taumana á Hlið við hlið, treystir krökkunum fyrir leik og söng þrátt fyrir litla reynslu hjá flestum enda er Einar þrautreyndur í bransanum. Það er ekki hver sem er sem fetar í fótspor Friðriks Dórs í söng en söngstjórinn Brynja Valdimarsdóttir passar sig á því og sérstaklega hjá karlsöngvurunum að láta þá ekki fara fram úr sér í söngnum. Þá má nefna að í lokalögum Jóels Þórs og Helga Rafns sungu þeir báðir mjög vel, eins og þeir væru loks komnir með kjark í að láta vaða. Dansarar sýningarinnar undir stjórn Söndru Ómarsdóttir standa sig vel og lífga upp á hana og nutu sín ansi mikið í lokalaginu Dönsum eins og hálfvitar sem var góður lokapunktur á kvöldinu. Niðurstaðan er vel heppnuð sýning hjá nemendum FVA með skemmtilegum lögum Friðriks Dórs og því um að gera fyrir Skagamenn og nærsveitunga að kíkja í Bíóhöllina á Hlið við hlið hið fyrsta.

Barþjónninn Grjóni brestur í söng.

Kokkurinn Rikki í kröppum dansi.

vaks

Vel heppnuð sýning FVA á Hlið við hlið - Skessuhorn