Þrúður Kristjánsdóttir og Dóra St. Ástvaldsdóttir halda málverkasýningu á Silfurtúni. Ljósm. Kristján Sturluson.

Jörvagleði í Dölum – MYNDASYRPA

Jörvagleðin stendur nú sem hæst en henni líkur á sunnudaginn. Hátíðin var sett í Árbliki á síðasta vetrardag þar sem fjölbreytt atriði voru á dagskrá. Félagar í Glímufélagi Dalamanna voru með glímusýningu, tónlistarfólk úr Héraði og víðar sungu og spiluðu og fjallað var um Ásmund Sveinsson myndhöggvara en fyrr um daginn var afhjúpað listaverk eftir Ásmund sem komið var fyrir við Rjómabúið Erpsstaði. Listaverkið heitir „Kona að strokka“ og verður nú til varðveislu við Rjómabúið en Ásmundur er fæddur og uppalinn á Kolsstöðum í Miðdölum. Í tilefni af 130 ára fæðingarafmæli Ásmundar í ár var ráðist í það verkefni að fá styttuna inn í Miðdali.

Jörvagleði í Dölum - MYNDASYRPA - Skessuhorn