Starfsmenn Almennu Umhverfisþjónustunnar gera klárt fyrir næstu steypu. Ljósm. tfk

Vorverkin á höfninni

Það er þó nokkuð um að vera á höfninni í Grundarfirði þessa dagana en verið er að steypa nýja þekju á eldri hluta hafnarinnar og svo er Köfunarþjónustan ehf að gera við göt á járnþiljum neðansjávar og verða næstu daga við þá vinnu. Svo eru að sjálfsögðu landanir þegar skipin koma til hafnar reglulega.

Vorverkin á höfninni - Skessuhorn