
Benedikt Líndal var fyrsti handhafi Morgunblaðsskeifunnar árið 1973. Hann afhenti Anítu Ýr Atladóttur verðlaunin. Ljósm. LbhÍ/ Vibeke Thoresen.
Viðurkenningar og verðlaun á Skeifudegi nemenda LbhÍ
Skeifudagurinn var að venju haldinn á Mið-Fossum í Andakíl í gær, á sumardaginn fyrsta. Dagurinn hófst á fánareið og ávarpi Helga Eyleifs Þorvaldssonar brautarstjóra. Nemendur í hestafræði sýndu munstursreið áður en nemendur í búfræði sýndu afraksturs vetrarins með tamningatrippi sín undir lýsingu reiðkennara þeirra; Guðbjartar Þórs Stefánssonar frá Skipanesi. Þá komu mæðgurnar Guðrún og Þórdís Fjeldsted og tóku gæðinga sína til kostanna. Eftir það riðu nemendur A og B úrslit í Gunnarsbikarnum og hélt Sigríður Bjarnadóttir brautarstjóri hestafræðibrautar erindi áður en veitt voru verðlaun.