Fréttir

true

Fjögur sveitarfélög á Vesturlandi mótmæla breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs

Í gær rann út frestur til að senda inn umsögn í Samráðsgátt stjórnvalda um gagngerar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Markmiðið með endurskoðun laga um Jöfnunarsjóð eru sögð þau að bæta gæði jöfnunar, einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og að Jöfnunarsjóður fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar. Miðað við umsagnir nokkurra sveitarfélaga af Vesturlandi er ekki verið að…Lesa meira

true

Kórar í Borgarfirði halda styrktartónleika fyrir Ármann Bjarna

Hinn tvítugi Ármann Bjarni Eyjólfsson varð fyrir vinnuslysi í síðasta mánuði þegar þriggja tonna steypueining endaði á vinstri fæti hans með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fótinn við miðjan legg. Hann hefur nú verið í endurhæfingu á Grensásdeild síðan 15. mars og von var á nýjum fæti fyrir komandi helgi. Ármann er úr Stafholtstungum í…Lesa meira

true

Koma úr ólíkum menningarheimum en sameinast í forritun og kristinni trú

Rætt við séra Ægir Örn Sveinsson og Paula Nerenberg Sveinsson, prestshjón í Ólafsvík Ægir Örn Sveinsson er Seyðfirðingur í grunninn og starfaði lengst af við forritun. Fyrir um fimmtán árum síðan fann hann guðfræðina kalla á sig og hóf þá nám. Hann er nú útskrifaður guðfræðingur og nýtekinn við sem prestur í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli…Lesa meira

true

Bæjarstjórn samþykkti nýtt skipulag vegna Garðabrautar 1

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag var til afgreiðslu nýtt skipulag fyrir lóðina Garðabraut 1. Þrjár athugasemdir höfðu á auglýsingatímanum borist, en þær voru frá Húsfélagi Skarðsbraut 3 og 5, Veitum og Vegagerðinni. Skipulags- og umhverfisráð hafði lagt til við bæjarstjórn að deiliskipulagið yrði samþykkt ásamt greinargerð skipulagsfulltrúa sem svör við þeim athugasemdum sem bárust…Lesa meira

true

Landbúnaðarstefna í fyrsta sinn á Íslandi

Í fyrsta skipti hefur verið lögð fram tillaga til þingsályktunar um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Stefnan var sett fram í liðinni viku af Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra og gildir hún til ársins 2040. Áherslur stefnunnar eru m.a. fæðuöryggi, loftslagsmál, landnýting, varðveisla landbúnaðar, alþjóðleg markaðssetning og fleira. Stefna stjórnvalda í landbúnaðarmálum hefur hingað til einungis birst í búvöru-…Lesa meira

true

Mótmæla harðlega tillögum að breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs

Í samráðsgátt stjórnvalda hafa verið til kynningar gagngerar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og rennur umsagnarfrestur út í dag 30. mars. Fyrirhugaðar breytingar munu hafa mjög mikil áhrif til lækkunar á framlögum til Akraneskaupstaðar eða um 40% sem koma eiga að fullu til framkvæmdar á næstu fjórum árum. Á fundi bæjarstjórnar Akraness þriðjudaginn 28. mars…Lesa meira

true

Erpsstaðahjón hljóta landbúnaðarverðlaunin 2023

Landbúnaðarverðlaun matvælaráðuneytisins voru afhent á Búnaðarþingi í dag. Verðlaunin hlutu þau Helga Elínborg Guðmundsdóttir og Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum í Dalabyggð. Í umsögn ráðuneytisins segir: „Þau Helga og Þorgrímur Einar hafa búið á Erpsstöðum í 25 ár og alla tíð ástundað búskap sinn af forsjá og áhuga. Á þessum árum hafa þau eflt búið…Lesa meira

true

„Orðsporið er fjöregg landbúnaðarins“

Búnaðarþing var sett í morgun í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra flutti þar ávarp þar sem hún fór yfir þau atriði sem sett hafa svip sinn á nýliðið landbúnaðarár og fór jafnfamt yfir þau verkefni sem framundan eru. Meðal þess sem ráðherra fjallaði um var sérstakur stuðningur sem veittur var til innlends landbúnaðar upp á 3,2…Lesa meira

true

Eva Björg fékk hljóðbókaverðlaun fyrir bestu glæpasöguna

Íslensku hljóðbókaverðlaunin Storytel Awards voru veitt við hátíðlega athöfn í Norðurljósum í Hörpu í gærkvöldi. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem hljóðbókaunnendur, útgefendur, höfundar og lesarar fagna saman útgáfu vönduðustu hljóðbóka síðasta árs. Verðlaun voru veitt í sex flokkum auk sérstakra heiðursverðlauna sem leikkonan Helga Elínborg Jónsdóttir hlaut fyrir ómetanlegt framlag til íslenskrar…Lesa meira

true

Í sælkerabíl mun fást allt frá tei til hrossakjöts

Um næstu helgi fer Svæðisgarðurinn Snæfellsjökull með sælkerabíl um Snæfellsnes. Í honum verða sælkeravörur frá Snæfellsnesi boðnar til sölu beint úr bíl (og frá býli). „Við stoppum á sex stöðum. Allskonar verður í boði og má þar nefna kálfakjöt, kaffi, te, krem, páska túlipana, þorsk og ýsu, kartöflur, hrossakjöt, sjávarréttasúpu, geitaafurðir, sápur, krem og fleira.…Lesa meira