Kórar í Borgarfirði halda styrktartónleika fyrir Ármann Bjarna

Hinn tvítugi Ármann Bjarni Eyjólfsson varð fyrir vinnuslysi í síðasta mánuði þegar þriggja tonna steypueining endaði á vinstri fæti hans með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fótinn við miðjan legg. Hann hefur nú verið í endurhæfingu á Grensásdeild síðan 15. mars og von var á nýjum fæti fyrir komandi helgi.

Ármann er úr Stafholtstungum í Borgarfirði. Nú ætla kórar í héraði ásamt fleirum að sameina krafta sína í samstarfi við Kvenfélag Reykdæla. Kórarnir munu halda styrktartónleika fyrir Ármann þar sem ljóst er að mikil og kostnaðarsöm endurhæfing er framundan hjá honum. Tónleikarnir munu eiga sér stað í Reykholtskirkju, þriðjudaginn 4. apríl næstkomandi og hefjast klukkan 20. Aðgangseyrir er 3.000 krónur og rennnur hann óskiptur til Ármanns en einnig er hægt að styrkja Ármann Bjarna með því að leggja inn á reikningsnúmer 0354-26-009190 og kennitölu 530679-0129, en reikningurinn er í nafni Kvenfélags Reykdæla.

Fram koma á tónleikunum Söngbræður, Freyjukórinn, Reykholtskórinn, Helgi Hreiðar Stefánsson, Marta Kristín Friðriksdóttir og Kristleifur Heiðar Helgason. Kaffiveitingar verða í hléi.

Móðir Ármanns, Auður Ármannsdóttir, segir Skessuhorni nánar frá slysi Ármanns í eftirfarandi tilkynningu.

Ármann Bjarni Eyjólfsson sem varð fyrir vinnuslysi að morgni 17. febrúar er tvítugur sveitastrákur sem hefur mestan áhuga á búskap og hefur einnig undanfarin ár verið að læra húsasmíði við Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra á Sauðárkróki. Hann er búinn að vinna á sumrin við húsasmíði frá grunnskólaaldri.

Núna um áramótin var hann orðinn leiður á náminu og peningalaus svo hann ákvað að taka sér hlé í náminu að mestu, bara taka áfanga í fjarnámi og vinna á samning hjá EJI ehf. Þar byrjaði hann strax og haustönninni lauk í desember. Hann var mjög glaður og sáttur með þessa ákvörðun sína og áhugasamur um þau verkefni sem hann var að vinna við.

Að morgni 17. febrúar, sléttum mánuði eftir tvítugsafmælið, var Ármann ásamt þremur öðrum starfsmönnum EJI ehf að stilla af forsteyptar sökkuleiningar við nýbyggingu við Sólbakka í Borgarnesi. Óhappið varð þegar sífa sem hélt veggnum var losuð að hluta, þá féll veggurinn, sem var 5 metra langur og 110 cm hár, á hliðina og náði Ármann ekki að komast alveg undan. Veggurinn lendir á vinstri fæti fyrir ofan ökkla og veldur mjög miklum skaða. Hann er losaður undan farginu og fluttur beint á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann komst strax í aðgerð.

Við foreldrarnir fréttum af þessu mjög fljótt og fórum í humátt á eftir sjúkrabílnum en hann var kominn inn á skurðstofu þegar við komum suður. Við tók þá biðin langa. Hann var um 4 tíma í aðgerð og fengum við að hitta hann fljótlega eftir að hann vaknaði. Hann hélt meðvitund í gegnum allt þar til hann var svæfður. Í fyrstu aðgerðinni  var áherslan á að reyna að bjarga æðunum, og beinunum bara raðað rétt upp en ekkert sett saman. Á næstu dögum kom í ljós að ekki gekk nógu vel að koma á blóðflæði í fótinn og var Ármann mjög verkjaður auk þess sem hann fékk lungnabólgu svo það var ákveðið að halda honum sofandi í öndunarvél um tíma til þess að hann gæti hvílt sig. Í aðgerð miðvikudaginn 22. febrúar varð ljóst að fætinum yrði ekki bjargað. Við vorum svo kölluð á fjölskyldufund daginn eftir og aðgerð ákveðin þriðjudaginn 7. mars.

Þarna fengum við tækifæri til að venjast tilhugsuninni um að tvítugur strákurinn yrði einfættur. Hann var mjög kvalinn og illa gekk að verkjastilla hann svo hann var orðinn sáttur með þetta þegar að aðgerð kom. Þar sem áverkinn var það neðarlega á fætinum var hægt að velja hvar fóturinn var tekinn fyrir neðan hné. Össur var kominn inn í málið strax og ákvörðun hafði verið tekin og var okkur fjölskyldunni boðið í VIP heimsókn til þeirra daginn eftir fjölskyldufundinnn sem okkur finnst alveg magnað.

Ármann flutti á Grensás miðvikudaginn 15. mars en síðastliðinn miðvikudag, 29. mars, voru saumarnir fjarlægðir og von er á nýjum fæti fyrir helgina.

Kórar í Borgarfirði halda styrktartónleika fyrir Ármann Bjarna - Skessuhorn