Kartöflur frá Hraunsmúla verður hægt að kaupa í bílnum.

Í sælkerabíl mun fást allt frá tei til hrossakjöts

Um næstu helgi fer Svæðisgarðurinn Snæfellsjökull með sælkerabíl um Snæfellsnes. Í honum verða sælkeravörur frá Snæfellsnesi boðnar til sölu beint úr bíl (og frá býli). „Við stoppum á sex stöðum. Allskonar verður í boði og má þar nefna kálfakjöt, kaffi, te, krem, páska túlipana, þorsk og ýsu, kartöflur, hrossakjöt, sjávarréttasúpu, geitaafurðir, sápur, krem og fleira. Tilvalið tækifæri að birgja sig upp af snæfellskum sælkeravörum fyrir páskahátíðina,“ segir í tilkynningu.

Í sælkerabíl mun fást allt frá tei til hrossakjöts - Skessuhorn