Fjögur sveitarfélög á Vesturlandi mótmæla breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs

Í gær rann út frestur til að senda inn umsögn í Samráðsgátt stjórnvalda um gagngerar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Markmiðið með endurskoðun laga um Jöfnunarsjóð eru sögð þau að bæta gæði jöfnunar, einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og að Jöfnunarsjóður fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar. Miðað við umsagnir nokkurra sveitarfélaga af Vesturlandi er ekki verið að tryggja þann jöfnuð. Eðli málsins samkvæmt munu mörg sveitarfélög skaðast af fyrirhuguðum breytingum meðan þær koma öðrum til góða. Alls höfðu 36 umsagnir borist um lagafrumvarpið eftir að frestur til að skila þeim rann út, flestar frá sveitarfélögum vítt og breitt um landið. Héðan af Vesturlandi höfðu borist mótmæli frá Akraneskaupstað, Eyja- og Miklaholtshreppi, Dalabyggð og Skorradalshreppi. Ekkert sveitarfélag í landshlutanum hefur fagnað tillögum um breytt regluverk Jöfnunarsjóðs, en líta verður svo á að þögn sé sama og samþykki í tilfelli fimm sveitarfélaga af níu á Vesturlandi.

Fjögur sveitarfélög á Vesturlandi mótmæla breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs - Skessuhorn