Fréttir

true

Barnamenningarhátíðin OK fer fram í maí

Barnamenningarhátíðin OK verður haldin dagana 8.-13. maí næstkomandi. Hátíðin fer milli svæða á Vesturlandi með stuðningi SSV og verður nú haldin í Borgarfirði og nágrenni. Á barnamenningarhátíðinni er fagnað allri menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn í lífi þeirra og verkefnum. Listaskóli Borgarfjarðar sér um skipulagið og framkvæmdina í samstarfi við fjölmarga…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Jörgen Nilsson

Jörgen Nilson er fæddur og uppalinn í Danmörku en flutti til Íslands árið 1999, með eiginkonu sinni Önnu Margréti Tómasdóttur. Þau kynntust í Danmörku og ætluðu einungis að dvelja á Íslandi að meðan þau væru í fæðingarorlofi með son sinn sem fæddist það sumar. Árið leið, og svo næsta og það næsta og eru árin…Lesa meira

true

ÍA vann Skallagrím í Vesturlandsslagnum

Nágrannaliðin ÍA og Skallagrímur mættust í sannkölluðum Vesturlandsslag í síðustu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik á þessu tímabili á föstudagskvöldið og var leikurinn í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Leikurinn hafði kannski ekki mikla þýðingu fyrir stöðu liðanna í deildinni nema kannski upp á stoltið að gera og að geta haldið montréttinum fram á…Lesa meira

true

Frábærri loðnuvertíð lokið hjá Brimi

Loðnan hefur nú gengið inn á grunnsævið til hrygningar og lauk því veiðum um síðustu helgi. Flest ef ekki öll útgerðarfyrirtækin náðu að veiða upp í kvótann á vertíðinni enda voru aðstæður eins og best verður á kosið, einkum nú undir það síðasta þegar loðnan var verðmest. Að sögn Garðars Á Svavarssonar, forstöðumanns uppsjávarvinnslu og…Lesa meira

true

MS er þekktasta vörumerkið hér á landi

Landsmenn nefna oftast hið gamalgróna vörumerki MS þegar þeir eru beðnir um að nefna vörumerki úr sínu daglega lífi sem þeim dettur fyrst í hug. Það er eina íslenska vörumerkið sem kemst á topp-fimm lista þeirra vörumerkja sem eru efst í huga Íslendinga. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Maskína gerði fyrir Hugverkastofuna nýlega…Lesa meira

true

Sérhæft björgunarsveitarfólk kallað til aðstoðar í Neskaupstað

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sent út boð til félagsmanna sinna, þar á meðal björgunarsveita á Vesturlandi, um að fara austur í Neskaupstað til aðstoðar vegna snóflóða sem þar hafa fallið í morgun. Vitað er um a.m.k. þrjú flóð sem fallið hafa í og við byggð, það fyrsta klukkan sex í morgun, annað klukkustund síðar en það…Lesa meira

true

Víkingur Ó. og Skallagrímur töpuðu í Lengjubikarnum

Víkingur Ólafsvík og KV áttust við í riðli 1 í B deild Lengjubikars karla á laugardaginn og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Askur Jóhannsson kom gestunum yfir strax á fyrstu mínútu og korteri seinna skoraði Agnar Þorláksson annað mark KV og staðan 0-2. Luis Romero Jorge minnkaði síðan muninn fyrir Víking eftir tæpan hálftíma leik og…Lesa meira

true

Snæfell tapaði naumlega fyrir Þór Akureyri í fyrsta leik

Þór Akureyri og Snæfell mættust í úrslitakeppni 1. deildar í körfuknattleik kvenna á laugardaginn og fór leikurinn fram í höllinni á Akureyri. Var um að ræða fyrsta leik í einvíginu og þarf að ná þremur sigrum til að komast í úrslitaviðureign á móti Stjörnunni eða KR um eitt sæti í Subway deildinni á næstu leiktíð.…Lesa meira

true

Eldavélin var hjarta heimilisins

Steingerður Jóhannsdóttir opnaði síðastliðinn laugardag ljósmyndasýningu hjá Þremur veggjum, sem er nýr sýningarsalur og listrými á Hellissandi. Fjölmargir gestir komu við opnun sýningarinnar. Sýningin ber nafnið „Húsanna hljóðnaði hjartsláttur.“ Á henni eru 13 stórar ljósmyndir, flestar af eldavélum en einnig af gluggum og eyðibýli. Myndirnar eru prentaðar á sérunninn grófan bómullarpappír sem gefur þeim draumkenndan…Lesa meira

true

Kúabændur í Baulu héldu aðalfund sinn

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu, sem nær frá sunnanverðu Snæfellsnesi, um Mýrar og Borgarfjörð norðan Skarðsheiðar, var haldinn mánudaginn 20. Mars í Félagsheimilinu Lyngbrekku. Á dagsskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf en þegar henni lauk var Baula og BúVest með sameiginlegan fræðslufund þar sem Guðmundur Jóhannesson sérfræðingur hjá RML og Jón Hjalti Eiríksson lektor hjá LbhÍ héldu fyrirlestra um…Lesa meira