Fréttir

true

Fyrsta sinn sem aðalfundur SAF er haldinn á Vesturlandi

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, fer fram á morgun fimmtudaginn 30. mars, á Fosshótel Stykkishólmi. Að sögn Bjarnheiðar Hallsdóttur, formanns samtakanna, er þetta í fyrsta skipti sem aðalfundur fer fram á Vesturlandi, en aðalfundir samtakanna eru haldnir til skiptis á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Annað hvert ár skal kjósa formann SAF og þrjá meðstjórnendur en hitt árið…Lesa meira

true

Frostbiter hátíðin var á lágstemmdum nótum

Áttunda Frostbiter hátíðin var haldin í Tónbergi og Keilusalnum á Akranesi um nýliðna helgi. Lovísa Lára Halldórsdóttir og Ársæll Rafn Erlingsson stóðu að hátíðinni eins og oft áður og var hún styrkt af Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi en frítt var inn á hátíðina.  Ársæll Rafn segir í stuttu spjalli við Skessuhorn að sýndar hafi verið um…Lesa meira

true

Blaðið í dymbilviku

Skessuhorn kom að venju út í morgun, fullt af áhugaverðu efni. Næsta tölublað kemur út degi fyrr en venjulega, þ.e. á þriðjudaginn í dymbilviku. Það er gert til að blaðið nái til allra áskrifenda í tæka tíð fyrir páska. Skilafrestur auglýsinga er í síðasta lagi á hádegi á mánudaginn, helst þó fyrir helgi. Ábendingar um…Lesa meira

true

Slökkvistarfi lokið við Eldborg

Búið er að slökkva eld sem upp kom við Eldborg í Kolbeinsstaðahreppi á þriðja tímanum í dag. Eldurinn var við keiluna sem stendur við hlið Eldborgar og kallast Litla Borg. Þar brann um hálfur hektari kjarrlendis. Slökkvilið hefur verið kallað til baka en slökkvilið og björgunarsveitarmenn úr Borgarbyggð og af Snæfellsnesi komu að slökkvistarfinu. Svæðið…Lesa meira

true

Sinueldur við Eldborg

Allt slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar tilkynning barst um sinueld við Eldborg í Kolbeinsstaðahreppi. Eldurinn er ekki umfangsmikill eins og er en vindur er norðanstæður og stutt í skóg. Vegur á staðinn er illfær. Sjónarvottar í sveitinni segja að um talsverðan eld sé að ræða.Lesa meira

true

Árshátíðarsýningar að hefjast í Brekkubæjarskóla

Þessa dagana er mikið húllum hæ í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Undanfarnar vikur hafa nemendur og starfsfólk verið að undirbúa árshátíð, en hún hefur ekki verið haldin í skólanum síðan 2019. Nú er komið að því að sýna afrakstur vinnunnar og í þessari viku eru sýningar fyrir nemendur og almenning. Nemendur úr 1.-10. bekk eru með…Lesa meira

true

Leikfélag MB sýndi fjórar sýningar af söngleiknum Syngdu

Söngleikurinn Syngdu í uppsetningu Leikfélags MB var sýndur síðastliðna helgi en alls voru fjórar sýningar sem rúlluðu á þremur dögum. Greinilegt er að í skólanum leynast miklir söng- og leikhæfileikar en krakkarnir sungu hvert öðru betra og voru sannfærandi í sínum karakterum. Mikil orka og gleði ríkti á sviðinu út alla sýninguna sem endaði í…Lesa meira

true

Hundrað ára fæðingarafmælis Bærings Cecilssonar minnst

Föstudaginn 24. mars voru liðin 100 ár frá fæðingu Bærings Cecilssonar ljósmyndara en hann var fæddur að Búðum í Eyrarsveit við norðanvert Kirkjufell. Bæring tók ótrúlegan fjölda ljósmynda og kvikmynda af náttúru og mannlífi í Eyrarsveit og víðar. Ásamt því að vera ljósmyndari þá rak hann vélsmiðju og starfaði sem fréttaljósmyndari fyrir RÚV og hin…Lesa meira

true

Skagakonur með góðan sigur á KH í Lengjubikarnum

KH og ÍA áttust við í riðli 1 í C deild kvenna í Lengjubikarnum í gær og var leikurinn á Valsvellinum við Hlíðarenda. Selma Dögg Þorsteinsdóttir kom Skagakonum á blað með marki rétt fyrir hálfleik og staðan 0-1 fyrir ÍA. Birta Ósk Sigurjónsdóttir jafnaði metin fyrir KH í byrjun seinni hálfleiks áður en fyrirliðinn Bryndís…Lesa meira

true

Urðu hlutskörpust í páskatvímenningi BB

Í gærkvöldi lauk þriggja kvölda páskamóti Bridgefélags Borgarfjarðar í tvímenningi. Fyrirkomulag mótsins var þannig að besti árangur tveggja kvölda gilti til úrslita. Afgerandi forystu í upphafi móts náðu þau Anna Heiða Baldursdóttir og Ingimundur Jónsson og héldu þau henni til enda. Uppskáru þau 128,1 stig. Í öðru sæti með 124,7 stig voru Heiðar Árni Baldursson…Lesa meira