Sigurvegarar á páskamóti BB. F.v. Karl, Viktor, Ingimundur, Anna Heiða, Heiðar Árni og Logi.

Urðu hlutskörpust í páskatvímenningi BB

Í gærkvöldi lauk þriggja kvölda páskamóti Bridgefélags Borgarfjarðar í tvímenningi. Fyrirkomulag mótsins var þannig að besti árangur tveggja kvölda gilti til úrslita. Afgerandi forystu í upphafi móts náðu þau Anna Heiða Baldursdóttir og Ingimundur Jónsson og héldu þau henni til enda. Uppskáru þau 128,1 stig. Í öðru sæti með 124,7 stig voru Heiðar Árni Baldursson og Logi Sigurðsson. Í þriðja sæti urðu svo Skagamennirnir Viktor Björnsson og Karl Alfreðsson með 114,4 stig. Allt fékk þetta heiðursfólk páskaegg að launum.

Næstkomandi mánudagskvöld 3. apríl verður einmenningskeppni félagsins. Allir eru velkomnir í Logaland, en spilamennska hefst stundvíslega klukkan 20.

Urðu hlutskörpust í páskatvímenningi BB - Skessuhorn