Slökkviliðsmaður að störfum. Ljósm. úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Sinueldur við Eldborg

Allt slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út rétt fyrir klukkan þrjú í dag þegar tilkynning barst um sinueld við Eldborg í Kolbeinsstaðahreppi. Eldurinn er ekki umfangsmikill eins og er en vindur er norðanstæður og stutt í skóg. Vegur á staðinn er illfær.

Sjónarvottar í sveitinni segja að um talsverðan eld sé að ræða.

Sinueldur við Eldborg - Skessuhorn