
Orkumikill hópur menntskælinga söng, lék og dansaði í sal MB um helgina. Ljósm. sþ.
Leikfélag MB sýndi fjórar sýningar af söngleiknum Syngdu
Söngleikurinn Syngdu í uppsetningu Leikfélags MB var sýndur síðastliðna helgi en alls voru fjórar sýningar sem rúlluðu á þremur dögum. Greinilegt er að í skólanum leynast miklir söng- og leikhæfileikar en krakkarnir sungu hvert öðru betra og voru sannfærandi í sínum karakterum. Mikil orka og gleði ríkti á sviðinu út alla sýninguna sem endaði í kraftmiklum samsöng. Söngleikurinn er byggður á teiknimyndinni Sing sem fjallar um tilraun dýra til að bjarga leikhúsinu sínu með söngkeppni. Sýningin er samvinnuverkefni Tónlistarskóla Borgarfjarðar, Leiklistarklúbbs MB og Menntaskóla Borgarfjarðar en Agnar Jón Egilsson sá um leikstjórn og uppsetningu.