Verðlaunahafar. F.v. Björn Ingi Ólafsson fjósameistari á Hvanneyri, Kristín Gunnarsdóttir á Lundi, Kristján Ágúst Magnússon á Snorrastöðum, Laufey Bjarnadóttir á Stakkhamri, Þröstur Aðalbjarnarson á Stakkhamri og Símon Bergur Sigurgeirsson á Lundi. Ljósm. Egill Gunnarsson.

Kúabændur í Baulu héldu aðalfund sinn

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu, sem nær frá sunnanverðu Snæfellsnesi, um Mýrar og Borgarfjörð norðan Skarðsheiðar, var haldinn mánudaginn 20. Mars í Félagsheimilinu Lyngbrekku. Á dagsskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf en þegar henni lauk var Baula og BúVest með sameiginlegan fræðslufund þar sem Guðmundur Jóhannesson sérfræðingur hjá RML og Jón Hjalti Eiríksson lektor hjá LbhÍ héldu fyrirlestra um skýrsluhald nautgriparæktarinnar, erfðamengisúrval og fýsileika þess að kyngreina nautasæði. Einnig skýrði Jón Gíslason formaður BúVest frá breytingum á skipulagi sæðingastarfsemi á landinu. Félögum í Baulu voru veittar viðurkenningar fyrir afurðahæstu kýr, afurðahæstu bú og hæst dæmdu kýr fyrir árið 2022. 

Kúabændur í Baulu héldu aðalfund sinn - Skessuhorn