
Sérhæft björgunarsveitarfólk kallað til aðstoðar í Neskaupstað
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sent út boð til félagsmanna sinna, þar á meðal björgunarsveita á Vesturlandi, um að fara austur í Neskaupstað til aðstoðar vegna snóflóða sem þar hafa fallið í morgun. Vitað er um a.m.k. þrjú flóð sem fallið hafa í og við byggð, það fyrsta klukkan sex í morgun, annað klukkustund síðar en það þriðja féll svo úr Bakkagili nokkru síðar. Haft er eftir Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra Fjarðabyggðar á Vísi.is að enginn hafi slasast alvarlega í flóðunum. Flóð féll á fjölbýlishús og náði inn í íbúð á annarri hæð. Einhver meiðsl urðu á fólki sem skarst vegna glerbrota.
Á Austurlandi er mikil ofankoma og snjór á láglendi sem og í fjöllum. Almannavarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna ástandsins. Búið er að opna fjöldahjálparstöð í Neskaupstað. Sömuleiðis er talin mikil hætta á snjóflóðum m.a. á Seyðisfirði þar sem verið er að rýma hús á skilgreindum hættusvæðum. Óskar Landsbjörg eftir björgunarfólki og aðgerðastjórnendum austur. Þarf það að vera yfir 25 ára og skilyrði sett um að viðkomandi hafi lokið snjóflóðanámskeiði.
