
Jökullinn Ok í ofanverðum Borgarfirði, sem á í vök að verjast sem slíkur.
Barnamenningarhátíðin OK fer fram í maí
Barnamenningarhátíðin OK verður haldin dagana 8.-13. maí næstkomandi. Hátíðin fer milli svæða á Vesturlandi með stuðningi SSV og verður nú haldin í Borgarfirði og nágrenni. Á barnamenningarhátíðinni er fagnað allri menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn í lífi þeirra og verkefnum. Listaskóli Borgarfjarðar sér um skipulagið og framkvæmdina í samstarfi við fjölmarga aðila, bæði skóla og fyrirtæki. Dagskráin er í hraðri mótun og áhersla lögð á að verkefni barna og ungmenna séu í sviðsljósinu. Þetta er júróvisjón-vikan og því upplagt að leggja hreinlega alla vikuna undir menningu og skemmtun með börnum sínum.