
Skinkuhorn – Jörgen Nilsson
Jörgen Nilson er fæddur og uppalinn í Danmörku en flutti til Íslands árið 1999, með eiginkonu sinni Önnu Margréti Tómasdóttur. Þau kynntust í Danmörku og ætluðu einungis að dvelja á Íslandi að meðan þau væru í fæðingarorlofi með son sinn sem fæddist það sumar. Árið leið, og svo næsta og það næsta og eru árin á Íslandi nú orðin 24. Fyrstu árin fékkst Jörgen við fjölbreytt verkefni, kennslu í grunnskólum Akraness, dönskukennslu í Fjölbrautaskólanum, verslunarstarf í tískuverslun og vann að auki í Járnblendinu á Grundartanga.