Fréttir

true

Tuttugu tillögur um opin og græn svæði á Akranesi

Í lok febrúar hófst verkefnið Okkar Akranes þar sem Akraneskaupstaður efndi til hugmyndasöfnunar sem snýr að grænum og opnum svæðum í bæjarfélaginu. Verkefnið í heild sinni er þríþætt; hugmyndasöfnun, rafræn kosning og loks framkvæmd. Markmið verkefnisins er að hvetja íbúa til að taka þátt í málefnum sem varða nærumhverfi þeirra og fá þá til að…Lesa meira

true

Kalla eftir hugmyndum af hátíðum á Vesturlandi árið 2024

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa kallað eftir hugmyndum að hátíðum á svæðum á Vesturlandi þar sem listahátíðir eru alla jafnan ekki að fara fram og uppfylla skilyrði sem sett eru í verkefninu. „Listahátíðir á Vesturlandi“ er hluti af áhersluverkefninu „Menningargróska“ og er sett fram til að efla framboð á faglegum listahátíðum í landshlutanum. Er þetta…Lesa meira

true

Rúntað um Skagann – Myndasyrpa

Það styttist í vorið og blaðamaður Skessuhorns skellti sér í bíltúr og á rúntinn á Akranesi eftir hádegi í dag. Myndavélin var með í för og festi á filmu fólk, dýr og hluti á ferð blaðamanns um bæinn. Svo er bara að vona að vorið komi sem fyrst en allavega var ágætis veður og ekki…Lesa meira

true

Ræða hagræðingu og mögulega fækkun afrétta – Fréttaskýring

Síðastliðið þriðjudagskvöld var boðað til bændafundar í Logalandi í Borgarfirði. Að fundinum stóð fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar annars vegar en hins vegar fjallskilanefnd upprekstrar Þverárréttar. Þessar afréttarnefndir eru skipaðar bændum sem reka á afrétti Arnarvatnsheiðar og upprekstrarsvæði Þverárréttar sem nær allt upp á Holtavörðuheiði, en fénu sem þar gengur er smalað og því réttað í Þverárrétt og…Lesa meira

true

Ráðleggja mun minni grásleppuveiðar á vertíðinni

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að veiðar á grásleppu á fiskveiðiárinu sem nú er að hefjast verði ekki meiri en 4.411 tonn. Það er um 37% lækkun milli ára. „Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvísitölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2023, en hún var undir langtíma meðaltali og lægri en sést hefur undanfarin ár,“ segir í tilkynningu. „Stofnvísitölur…Lesa meira

true

,,Allir geta lært, það er bara spurning hvaða leið þeir fara að því“

Skagakonan Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir á að baki einstaka sögu í skólakerfinu, hún útskrifaðist úr grunnskóla með einn og tvo í einkunn en var rétt fyrir útskrift þaðan greind með mikla lesblindu. Hún gekk í grunn- og framhaldsskóla á Akranesi en var þó mikið í sveit í Borgarfirði. Í dag er Sigurrós útskrifuð úr grunnskólakennarafræðum frá…Lesa meira

true

Það gæti orðið snúið að renna fyrir fisk í Leirá

„Við stefnum á að opna fyrir sjóbirtingsveiði í Leirá í Hvalfjarðarsveit 1. apríl næstkomandi, ef það verður hægt. Til þess þarf þó fyrst að hlýna verulega,“ segir Stefán Sigurðsson leigutaki Leirár í samtali við Skessuhorn. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er varla auða vök að sjá á ánni. Miðað við veðurspá er ólíklegt að…Lesa meira

true

Mynd frá björgunarleiðangrinum í gær

Slysavarnafélagið Landsbjörg sendi Skessuhorni mynd sem tekin var í gær þegar björgunarsveitarfólk hélt til uppgöngu í Botnsá, áleiðis að þeim stað sem ung kona hafði hrapað í gilinu neðan við fossinn Glym. Aðstæður á vettvangi voru afar erfiðar og krefjandi eins og sjá má á þessari mynd. Mikill ís var í gilinu og hætta á…Lesa meira

true

Umsóknir í páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram mánudaginn 3. apríl frá klukkan 13:00-16:30. Verður hún í húsnæðinu við Dalbraut 2, á sama stað og úthlutað var fyrir síðustu jól. „Þeir sem skiluðu inn gögnum fyrir síðustu jólaúthlutun þurfa ekki að skila núna. Nýir umsækjendur geta nálgast staðgreiðsluskrá á vef RSK eða á Skattstofunni. Tekið er á móti…Lesa meira

true

Kona lést eftir fall við Glym

Kona á þrítugsaldri féll niður í gilið við fossinn Glym í Hvalfirði í gærmorgun og lést. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi en í henni segir að um klukkan hálf ellefu í gærmorgun hafi lögreglu borist tilkynning um að erlendur ferðamaður hafi fallið niður í gilið. Lögreglan á Vesturlandi ásamt sjúkraliði og…Lesa meira