Frá björgunarleiðangri í Botnsá sl. miðvikudag. Ljósm. Landsbjörg.

Mynd frá björgunarleiðangrinum í gær

Slysavarnafélagið Landsbjörg sendi Skessuhorni mynd sem tekin var í gær þegar björgunarsveitarfólk hélt til uppgöngu í Botnsá, áleiðis að þeim stað sem ung kona hafði hrapað í gilinu neðan við fossinn Glym. Aðstæður á vettvangi voru afar erfiðar og krefjandi eins og sjá má á þessari mynd. Mikill ís var í gilinu og hætta á hruni yfir björgunarsveitarfólk. Tryggja þurfti gönguleiðina og koma börum áleiðis á staðinn. Því miður var konan látin þegar björgunarfólk komst á vettvang.

Mynd frá björgunarleiðangrinum í gær - Skessuhorn