
Umsóknir í páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar
Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram mánudaginn 3. apríl frá klukkan 13:00-16:30. Verður hún í húsnæðinu við Dalbraut 2, á sama stað og úthlutað var fyrir síðustu jól. „Þeir sem skiluðu inn gögnum fyrir síðustu jólaúthlutun þurfa ekki að skila núna. Nýir umsækjendur geta nálgast staðgreiðsluskrá á vef RSK eða á Skattstofunni. Tekið er á móti umsóknum í síma 859-3000 og 859-3200 dagana 23.-24. og 27. mars frá kl. 11-13. Einnig má sækja um á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com,“ segir í tilkynningu.
Einnig er bent á að styrktarreikningur Mæðrastyrksnefndar er: 0552-14-402048 og kt. 411276-0829.