Tuttugu tillögur um opin og græn svæði á Akranesi

Í lok febrúar hófst verkefnið Okkar Akranes þar sem Akraneskaupstaður efndi til hugmyndasöfnunar sem snýr að grænum og opnum svæðum í bæjarfélaginu. Verkefnið í heild sinni er þríþætt; hugmyndasöfnun, rafræn kosning og loks framkvæmd. Markmið verkefnisins er að hvetja íbúa til að taka þátt í málefnum sem varða nærumhverfi þeirra og fá þá til að koma með hugmyndir og forgangsraða. Fjármagni verður svo útdeilt í smærri framkvæmdir/ verkefni á vegum bæjarins með íbúakosningu.

Tuttugu tillögur um opin og græn svæði á Akranesi - Skessuhorn