Kona lést eftir fall við Glym

Kona á þrítugsaldri féll niður í gilið við fossinn Glym í Hvalfirði í gærmorgun og lést. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi en í henni segir að um klukkan hálf ellefu í gærmorgun hafi lögreglu borist tilkynning um að erlendur ferðamaður hafi fallið niður í gilið. Lögreglan á Vesturlandi ásamt sjúkraliði og fjölmennu liði frá björgunarsveitum fóru á vettvang ásamt því að þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út.

Aðstæður voru að sögn lögreglu erfiðar á vettvangi og fóru björgunarsveitarmenn upp gilið og komu að þar sem kona á þrítugsaldri fannst látin. Hún ásamt maka sínum höfðu verið tvö á gönguferð upp með gilinu að ofanverðu við Glym og hún fallið fram af brúninni. Fallið var mjög hátt og ljóst að konan lést samstundis.

Aðgerðum á vettvangi lauk ekki fyrr en um klukkan 17 í gær. Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi vinnur að rannsókn málsins. Lögreglan á Vesturlandi vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem komu að björgunaraðgerðum.

Kona lést eftir fall við Glym - Skessuhorn