Fjárrekstur af Arnarvatnsheiði. Ljósm. mm

Ræða hagræðingu og mögulega fækkun afrétta – Fréttaskýring

Síðastliðið þriðjudagskvöld var boðað til bændafundar í Logalandi í Borgarfirði. Að fundinum stóð fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar annars vegar en hins vegar fjallskilanefnd upprekstrar Þverárréttar. Þessar afréttarnefndir eru skipaðar bændum sem reka á afrétti Arnarvatnsheiðar og upprekstrarsvæði Þverárréttar sem nær allt upp á Holtavörðuheiði, en fénu sem þar gengur er smalað og því réttað í Þverárrétt og Fljótstungurétt.

Ræða hagræðingu og mögulega fækkun afrétta - Fréttaskýring - Skessuhorn