
Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir með útskriftarskírteini sín frá Bifröst og HÍ. Ljósm. sþ.
,,Allir geta lært, það er bara spurning hvaða leið þeir fara að því“
Skagakonan Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir á að baki einstaka sögu í skólakerfinu, hún útskrifaðist úr grunnskóla með einn og tvo í einkunn en var rétt fyrir útskrift þaðan greind með mikla lesblindu. Hún gekk í grunn- og framhaldsskóla á Akranesi en var þó mikið í sveit í Borgarfirði. Í dag er Sigurrós útskrifuð úr grunnskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands en hún fann kjark til að halda áfram í námi eftir að hafa fundið leiðir til að vinna með lesblinduna sína 21 árs að aldri. Sigurrós leit í kaffi til blaðamanns Skessuhorns og dró fram greiningarvottorðið sitt þar sem allir matsþættir stóðu í núlli. Hún hefur því náð ótrúlegum árangri. Sigurrós sagði blaðamanni sína sögu.