
Lena, Sandra og Carmen voru að leika sér í aparólunni í Brekkó. Ljósmyndir: vaks
Rúntað um Skagann – Myndasyrpa
Það styttist í vorið og blaðamaður Skessuhorns skellti sér í bíltúr og á rúntinn á Akranesi eftir hádegi í dag. Myndavélin var með í för og festi á filmu fólk, dýr og hluti á ferð blaðamanns um bæinn. Svo er bara að vona að vorið komi sem fyrst en allavega var ágætis veður og ekki annað að sjá að það væri kominn vorhugur í flesta, bæði menn og dýr. Sjá fimmtán myndir úr mannlífi dagsins.