Kalla eftir hugmyndum af hátíðum á Vesturlandi árið 2024

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa kallað eftir hugmyndum að hátíðum á svæðum á Vesturlandi þar sem listahátíðir eru alla jafnan ekki að fara fram og uppfylla skilyrði sem sett eru í verkefninu. „Listahátíðir á Vesturlandi“ er hluti af áhersluverkefninu „Menningargróska“ og er sett fram til að efla framboð á faglegum listahátíðum í landshlutanum. Er þetta liður í að uppfylla markmið Sóknaráætlunar Vesturlands um að auka hlutdeild skapandi atvinnugreina í atvinnulífi svæðisins og að Vesturland verði þekkt fyrir ríkt menningarstarf með öflugri markaðssetningu.

Kalla eftir hugmyndum af hátíðum á Vesturlandi árið 2024 - Skessuhorn