Fréttir

true

Grundarfjörður sigurvegari í Krakkakvissi 2023

Úrslitaviðureignin í Krakkakvissi var sýnd á Stöð 2 í gærkvöldi. Þar áttust við Grundarfjörður og KR og óhætt að segja að um mjög skemmtilega og afar spennandi viðureign hafi verið að ræða. Lið Grundarfjarðar er skipað þeim Kristu Rún Þrastardóttur, Hauki Orra Heiðarssyni og Hans Bjarna Sigurbjörnssyni. Þau eru þau öll nemendur í Grunnskóla Grundarfjarðar…Lesa meira

true

Leiðbeiningar fyrir blaðaáskrifendur sem vilja bæta við sig vefáskrift

Frá og með síðasta mánudegi bættist vefáskrift að skessuhorn.is við sem áskriftarmöguleiki hjá Skessuhorni. Vefáskrift ein og sér kostar 1.998 krónur á mánuði og gefur aðgang að mestöllu efni sem framleitt er á ritstjórn. Áskrifendum blaðs býðst að kaupa vefáskrift á hálfvirði, eða fyrir 999 krónur á mánuði. Vilji núverandi blaðaáskrifendur bæta við sig vefáskrift…Lesa meira

true

Samfylkingin afhjúpar nýtt merki flokksins

Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær var afhjúpað nýtt merki flokksins. Það er hannað af Sigga Odds hönnuði. Við þetta tilefni sagði Kristrún Frostadóttir formaður: „Ég er stolt af nýju rósinni og nýja útlitinu…“ Sagði hún að rauða rósin væri merki flokksins og að nú verði tekinn aftur upp sterkari og klassískari rauður litur en áður;…Lesa meira

true

Hefur alltaf haft mikinn áhuga á innanhússhönnun – MYNDIR

Kíkt í heimsókn til Önnu Sólrúnar Kolbeinsdóttur í Borgarnesi Þegar komið er inn á heimili þeirra Önnu Sólrúnar Kolbeinsdóttur og Friðriks Pálma Pálmasonar að Kjartansgötu 18 í Borgarnesi má strax og komið er inn um gættina sjá að þar býr fólk sem þykir vænt um heimilið sitt og þykir gaman að nostra við það. Inni…Lesa meira

true

Sjöundi sigur Skallagríms í röð

Það er óhætt að segja að lið Skallagríms hafi verið á eldi síðustu vikurnar í 1. deild karla í körfuknattleik og var síðasti tapleikur liðsins um miðjan janúar þegar þeir urðu að lúta í lægra haldi fyrir toppliði Álftaness á heimavelli, 86:92. Í gærkvöldi tóku þeir á móti Hrunamönnum í Fjósinu í Borgarnesi og héldu…Lesa meira

true

Skagamenn lágu fyrir Ármanni

ÍA og Ármann áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Ármenningar byrjuðu betur í leiknum, komust í 2:8 fljótlega og voru með nokkurra stiga forystu nánast allan fyrsta leikhluta. Bæði lið voru alls ekki að hitta vel enda stigaskorið eftir því en Frank…Lesa meira

true

Euromarket málið – rannsókn lokið og enginn ákærður

„Ferlið var byggt á fordómum og ég krefst afsökunarbeiðni,“ segir Þórður Ársæll Magnússon athafnamaður í Grundarfirði sem bendlaður var við málið að ósekju. Árið 2017 boðaði lögreglan til umfangsmikils blaðamannafundar í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík. Þar var tilkynnt um upprætingu alþjóðlegs glæpahrings sem teygði anga sína til Íslands og tengdist verslununum Euromarket sem höndla með matvöru…Lesa meira

true

Samþykkti þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks

Akraneskaupstaður hefur samþykkt að gerast móttökusveitarfélag vegna samræmdrar móttöku flóttafólks. Á grundvelli þess munu Akraneskaupstaður og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti gera með sér þjónustusamning en í samningnum þarf að tilgreina þann fjölda sem Akraneskaupstaður hyggst taka á móti og veita þjónustu. Tillaga starfsmanna félagsþjónustu var lögð fyrir velferðar- og mannréttindaráð þann 7. febrúar 2023 og var…Lesa meira

true

ÞÞÞ skiptir um eigendur um miðjan mánuðinn

Gengið hefur verið frá sölu á hinu gamalgróna fjölskyldufyrirtæki Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi. Fyrirtækið er það elsta á Akranesi, var stofnað 23. ágúst 1927 af Þórði Þ Þórðarsyni og hefur fyrirtækið þar til nú verið rekið í beinan karllegg af sömu fjölskyldunni. Þórður Þórðarson tók við af föður sínum og síðan synir hans, bræðurnir Þórður…Lesa meira

true

Horfið frá svæðaskiptingu aflamarks í loðnu

Hafrannsóknastofnun hefur ákveðið að endurskoða loðnuveiðiráðgjöf sem gefin var út 24. febrúar síðastliðinn fyrir yfirstandandi vertíð. Endurskoðunin felst í því að stofnunin telur óhætt að hverfa frá ráðgjöf um svæðaskipt aflamark. „Endurskoðunin byggir á ítarlegri yfirferð veiðiskipa fyrir Norðurlandi, með sérstaka áherslu á Húnaflóasvæðið, ásamt könnun rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar og veiðiskipsins Venusar NS út af…Lesa meira