Fréttir

true

Missir fót í kjölfar vinnuslyss

Maðurinn sem slasaðist á fæti við vinnu á Sólbakka í Borgarnesi föstudaginn 17. febrúar heitir Ármann Bjarni Eyjólfsson og er nýorðinn tvítugur. Bar slysið að með þeim hætti að steypt eining, um þrjú tonn að þyngd, féll á vinstri fót Ármanns við ökkla hvar hann vann við að reisa skemmu á Sólbakka. Ármann var strax…Lesa meira

true

Kári tapaði sínum fyrsta leik í Lengjubikarnum

Kári og Reynir Sandgerði léku fyrsta leikinn í þriðju umferð Lengjubikarsins í riðli 1 í B deild karla í gærkvöldi og var leikurinn í Akraneshöllinni. Káramenn höfðu unnið fyrstu tvo leiki sína í riðlinum afar sannfærandi og gátu með sigri komið sér vel fyrir í efsta sætinu. Þeir komust yfir strax á 6. mínútu þegar…Lesa meira

true

Fjögur skip taka þátt í marsralli Hafró

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum hófst mánudaginn 27. febrúar og stendur yfir í þrjár vikur. Í tilkynningu frá Hafró kemur fram að fjögur skip taka þátt í verkefninu að þessu sinni; togararnir Breki VE og Gullver NS, auk rannsóknaskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar. Togað verður á tæplega 600 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið.…Lesa meira

true

Kári þéttir raðirnar fyrir þriðju deildina

Síðasta hálfan mánuð hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Knattspyrnufélaginu Kára á Akranesi sem leikur í 3. deildinni næsta sumar. Alls hafa 14 leikmenn gengið til liðs við félagið og þar af sex leikmenn frá ÍA og sex frá Skallagrími í Borgarnesi. Frá ÍA koma þeir Björn Darri Ásmundsson, Sveinn Svavar Hallgrímsson og…Lesa meira

true

Brákarhlíð sækir um leyfi fyrir niðurrifi á Borgarbraut 63

Í fundargerð um afgreiðslur byggingarfulltrúa Borgarbyggðar síðasta miðvikudag kemur fram að Brákarhlíð hjúkrunar- og dvalarheimilið, sem er við Borgarbraut 65 í Borgarnesi, hafi sótt um leyfi fyrir því að húsið sem stendur við Borgarbraut 63 verði rifið. Það er kallað Sumarliðahús af gömlum Borgnesingum en þar bjó Sumarliði Sigmundsson frá Gróf í Reykholtsdal fyrir miðja…Lesa meira

true

Stefnt að því að taka skóflustungu að nýrri íþróttamiðstöð í vor

Á fundi byggðarráðs Dalabyggðar 22. febrúar var sveitarstjóra og formanni byggðarráðs falið að ganga frá samningum við Eykt ehf. um byggingu íþróttamiðstöðvar í Búðardal. Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri, segir í samtali við Skessuhorn að komið sé á munnlegt samkomulag milli sveitarfélagsins og Eyktar en tilboð Eyktar hljóðar upp á rétt tæpan 1,2 milljarð króna. Dalabyggð…Lesa meira

true

Endurtelja skal ef innan við 20 atkvæði ber á milli

Ný, en gölluð, kosningalög tóku gildi 1. janúar 2022 og reyndi fyrst á beitingu þeirra og þar með galla í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar voru vorið 2022. Við framkvæmd laganna komu í ljós ýmsir vankantar sem nauðsynlegt þótti að lagfæra við fyrsta tækifæri og er skemmst að minnast mikilla áhrifa hæfisreglu laganna á skipan kjörstjórna. Nú…Lesa meira

true

Þetta er allt svo skemmtilegt

Rætt við Halldór Þorgils Þórðarson frá Breiðabólsstað á Fellsströnd í Dölum. „Mér var ýtt út í tónlistina,“ segir Halldór Þorgils Þórðarson organisti sem séð hefur um messuspil og kórstjórn í kirkjum Dalabyggðar í ein 66 ár. Halldór kom að stofnun Þorrakórsins á Fellsströnd árið 1963 og hefur stjórnað þeim kór allar götur síðan. Auk þess…Lesa meira

true

Stofnfundur félags fólks með offitu

Laugardaginn 4. mars núkomandi er alþjóðlegur dagur offitu. „Hér á Íslandi tökum við þátt í deginum með því að stofna fyrstu samtök landsins skipuð af fólki með offitu. Stofnfundurinn verður haldinn í sal Hjálpræðishersins að Suðurlandsbraut 72 í Reykjavík og hefst klukkan 13:00. Við hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu og bætt…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík fær liðsstyrk

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvíkur hefur samið við marokkóska leikmanninn Abdelhadi Khalok um að leika með liðinu í 2. deildinni næsta sumar sem hefst í byrjun maí. Fram kemur á FB síðu félagsins að Khalok sem er fæddur og uppalinn á Spáni sé 26 ára sóknarmaður og þyki mjög hraður og teknískur leikmaður. Hann er væntanlegur til…Lesa meira