
Sumarliðahús við Borgarbraut 63. Ljósm. gj
Brákarhlíð sækir um leyfi fyrir niðurrifi á Borgarbraut 63
Í fundargerð um afgreiðslur byggingarfulltrúa Borgarbyggðar síðasta miðvikudag kemur fram að Brákarhlíð hjúkrunar- og dvalarheimilið, sem er við Borgarbraut 65 í Borgarnesi, hafi sótt um leyfi fyrir því að húsið sem stendur við Borgarbraut 63 verði rifið. Það er kallað Sumarliðahús af gömlum Borgnesingum en þar bjó Sumarliði Sigmundsson frá Gróf í Reykholtsdal fyrir miðja síðustu öld ásamt fjölskyldu sinni. Um er að ræða lítið, tvílyft íbúðarhús sem er um 66 fermetrar að grunnfleti, steinsteypt, með timburþaki og er húsið allt klætt með málmklæðningu.