Endurtelja skal ef innan við 20 atkvæði ber á milli

Ný, en gölluð, kosningalög tóku gildi 1. janúar 2022 og reyndi fyrst á beitingu þeirra og þar með galla í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar voru vorið 2022. Við framkvæmd laganna komu í ljós ýmsir vankantar sem nauðsynlegt þótti að lagfæra við fyrsta tækifæri og er skemmst að minnast mikilla áhrifa hæfisreglu laganna á skipan kjörstjórna. Nú hefur verið lagt fram nýtt frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda þar sem gerðar eru ýmsar lagfæringar svo sem á reglum um hæfi kjörstjórnarmanna og kjörstjóra. Hæfisreglan er þrengd þannig að kjörstjórnarmaður telst vanhæfur ef til úrskurðar er mál sem varðar maka hans eða sambúðarmaka, enda sé sambúðin skráð í þjóðskrá, eða þann sem er skyldur honum eða mægður í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti við ættleiðingu. Einnig getur kjörstjórnarmaður verið vanhæfur ef að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu.

Endurtelja skal ef innan við 20 atkvæði ber á milli - Skessuhorn