Stofnfundur félags fólks með offitu

Laugardaginn 4. mars núkomandi er alþjóðlegur dagur offitu. „Hér á Íslandi tökum við þátt í deginum með því að stofna fyrstu samtök landsins skipuð af fólki með offitu. Stofnfundurinn verður haldinn í sal Hjálpræðishersins að Suðurlandsbraut 72 í Reykjavík og hefst klukkan 13:00. Við hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu og bætt við að gott aðgengi sé að staðnum. Markmið félagsins er að koma rödd fólks með offitu upp á yfirborðið og auka fræðslu og þekkingu þannig að skömmin verði tekin af sjúkdómnum og einnig að fólk fái rétta meðferð við offitu.

Stofnfundur félags fólks með offitu - Skessuhorn