
Samsett mynd. Skessuhorn
Stefnt að því að taka skóflustungu að nýrri íþróttamiðstöð í vor
Á fundi byggðarráðs Dalabyggðar 22. febrúar var sveitarstjóra og formanni byggðarráðs falið að ganga frá samningum við Eykt ehf. um byggingu íþróttamiðstöðvar í Búðardal. Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri, segir í samtali við Skessuhorn að komið sé á munnlegt samkomulag milli sveitarfélagsins og Eyktar en tilboð Eyktar hljóðar upp á rétt tæpan 1,2 milljarð króna. Dalabyggð er í viðræðum við bankastofnanir varðandi fjármögnun á framkvæmdatíma og segir Bjarki að skrifað verði undir um leið og búið sé að klára þær viðræður.