Gabriel Adersteg var með 34 stig á móti Ármanni. Hér í leik gegn liði Hamars í síðasta mánuði. Ljósm. Jónas H. Ottósson

Skagamenn lágu fyrir Ármanni

ÍA og Ármann áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Ármenningar byrjuðu betur í leiknum, komust í 2:8 fljótlega og voru með nokkurra stiga forystu nánast allan fyrsta leikhluta. Bæði lið voru alls ekki að hitta vel enda stigaskorið eftir því en Frank Gerritsen átti síðustu körfuna fyrir ÍA og jafnt eftir fyrsta fjórðung, 15:15. Það var mikið jafnræði með liðunum í öðrum leikhluta og þau skiptust á að ná forystu. Ármann átti þó góðan endasprett þegar þeir skoruðu sex stig í röð og þegar flautað var til hálfleiks var munurinn fjögur stig gestunum í vil, 34:38.

Skagamenn lágu fyrir Ármanni - Skessuhorn