
ÞÞÞ skiptir um eigendur um miðjan mánuðinn
Gengið hefur verið frá sölu á hinu gamalgróna fjölskyldufyrirtæki Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi. Fyrirtækið er það elsta á Akranesi, var stofnað 23. ágúst 1927 af Þórði Þ Þórðarsyni og hefur fyrirtækið þar til nú verið rekið í beinan karllegg af sömu fjölskyldunni. Þórður Þórðarson tók við af föður sínum og síðan synir hans, bræðurnir Þórður Þ og Ólafur Þórðarsynir ásamt systkinum þeirra sem áður hafa verið keypt út úr rekstrinum. Snókur eignarhaldsfélag ehf, sem er í eigu bræðranna Kristmundar og Hrafns Einarssona, kaupir nú fyrirtækið og tekur formlega við rekstri þess 15. mars næstkomandi. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á starfseminni sem áfram mun halda sama nafni, kennitölu og starfsmönnum. G. Ingþór Guðjónsson verður áfram framkvæmdastjóri og Þórður mun áfram starfa við fyrirtækið, en nú sem „starfsmaður á plani.“ Blaðamaður Skessuhorns settist niður með þeim Þórði Þ og Ingþóri og forvitnaðist aðeins um þessi tímamót í sögu fyrirtækisins.