
Sjöundi sigur Skallagríms í röð
Það er óhætt að segja að lið Skallagríms hafi verið á eldi síðustu vikurnar í 1. deild karla í körfuknattleik og var síðasti tapleikur liðsins um miðjan janúar þegar þeir urðu að lúta í lægra haldi fyrir toppliði Álftaness á heimavelli, 86:92. Í gærkvöldi tóku þeir á móti Hrunamönnum í Fjósinu í Borgarnesi og héldu þar sigurgöngu sinni áfram. Skallagrímur gaf strax tóninn í byrjun leiks, komust í 11:2 og náðu mest 15 stiga forskoti eftir tæpan sjö mínútna leik, staðan 21:7. Gestirnir frá Flúðum náðu síðan að bíta aðeins frá sér og staðan 26:17 fyrir Skallagrími þegar fyrsta leikhluta lauk. Heimamenn héldu áfram að keyra upp hraðann í öðrum leikhluta sem Hrunamenn áttu fá svör við og Skallarnir með 20 stiga forystu þegar flautað var til hálfleiks, 52:32.