Fréttir

true

ÍA vann Grindavík í Lengjubikarnum

ÍA og Grindavík mættust í riðli 1 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í hádeginu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Ekkert var skorað í fyrri hálfleik og fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á 79. mínútu. Þar var að verki Ármann Ingi Finnbogason sem fékk boltann á hægri kantinum, fór…Lesa meira

true

Áfram leitað að húsakosti fyrir Byggðasafn Dalamanna

Byggðarráð Dalabyggðar hefur skipað þrjá fulltrúa í vinnuhóp til að halda utan um vinnu til að finna byggðasafni Dalamanna nýja aðstöðu. Málið á sér nokkuð langa forsögu en byggðasafnið hefur verið í kjallara í húsnæði gamla Laugaskóla frá 1979. Þá hefur það verið lokað síðustu þrjú árin og safnmunir staðið óhreyfðir í kjallaranum. Skessuhorn sagði…Lesa meira

true

Björgunarhringjum stolið af Breiðinni

Fyrr í vetur var tveimur björgunarhringjum stolið af Breiðinni á Akranesi. Annar þeirra var vestast þar sem gengið er niður á Flösina en hinn var hengdur á vegginn við Skarfavör. Að sögn Hilmars Sigvaldasonar vitavarðar er mjög bagalegt þegar svona er gert, því það dregur verulega úr möguleikum á að koma fólki til bjargar sem…Lesa meira

true

Hrognafrysting hófst á Akranesi á föstudaginn

Loðnuveiðar standa nú sem hæst við landið og eru allar vinnslustöðvar umhverfis landið komnar á fullt. Í kjölfar þess að stór ganga mældist norðan af Húnaflóa undir lok febrúar ákvað Hafrannsóknastofnun að leggja til auknar veiðiheimildir sem nema 184 þúsund tonnum. Byrjað var að frysta loðnuhrogn á Akranesi á föstudaginn og hafa skipin Venus, Víkingur…Lesa meira

true

Keppt var í tölti á KB mótaröðinni

Annað mótið í KB mótaröðinni í hestaíþróttum fór fram um helgina í Faxaborg. Keppt var í tölti í öllum flokkum. Lokamótið fer svo fram laugardaginn 18. mars þegar keppt verður í fimmgangi. Þá verða einnig veitt verðlaun í einstaklingskeppninni, en öll þrjú mótin telja til stiga og fimm efstu keppendur í hverjum flokki verða verðlaunaðir.…Lesa meira

true

Góðan daginn faggi

Leiksýningin Góðan daginn faggi hefur verið á ferð um landið undanfarin misseri en sýningin sló í gegn í Þjóðleikhúsinu á síðasta ári. Höfundar verksins eru allir uppaldir á landsbyggðinni og er Bjarni Snæbjörnsson leikari frá Tálknafirði, Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri frá Hrísey og Axel Ingi Árnason tónskáld úr Eyjafjarðarsveit. Sýningin er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem…Lesa meira

true

Streymi af þjóðfundi í dag um framtíð skólaþjónustu

Mikill áhugi er á þátttöku í að móta framtíð skólaþjónustu. Alls hafa tæplega 500 skráð sig til þátttöku á þjóðfund mennta- og barnamálaráðherra í Hörpu í dag, mánudag. Þjóðfundi verður streymt á vef Stjórnarráðsins með táknmálstúlku Streymi af þjóðfundi um framtíð skólaþjónustu, ásamt dagskrá Tilgangur þjóðfundarins er að ræða niðurstöður samráðs um ný heildarlög um skólaþjónustu, varpa…Lesa meira

true

Kútmagakvöld Lions í Grundarfirði – myndasyrpa

Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir hinu árlega Kútmagakvöldi síðasta laugardagskvöld. Góð mæting var í veisluna enda kræsingarnar glæsilegar að vanda. Að þessu sinni var verið að safna fyrir sauna aðstöðu við Sundlaug Grundarfjarðar en það hefur vantað í nokkur ár síðan gamli saunaklefinn var aflagður. Það er sérstaklega hjálplegt fyrir Slökkvilið Grundarfjarðar að hafa aðgang að…Lesa meira

true

Svipmyndir Tolla „Borgarnes Today“ á skjá í Safnahúsinu

Síðan árið 2010 hefur Þorleifur Geirsson tekið ljósmyndir á ferðum sínum um heimabæ sinn Borgarnes. Mynd dagsins setur hann síðan á heimasíðuna sína „Borgarnes Today.“ Myndirnar eru frá öllum dögum ársins, teknar jafnt í góðu sem slæmu veðri og sýna þar af leiðandi jafnt mannlíf, byggingar og það sem fyrir linsu ljósmyndarans ber hverju sinni.…Lesa meira

true

Björgunarsveitin Ok bætir öflugum og tæknilega fullkomnum bíl í flotann

Í gær bættist nýr bíll í flota Björgunarsveitarinnar Oks í Borgarfirði. Var félagsmönnum af því tilefni boðið í kjötsúpu í hádeginu og bíllinn sýndur. Nú í vor, eða laugardaginn 6. maí, stefnir björgunarsveitin síðan á að hafa opið hús í Þorsteinsbúð í Reykholti þangað sem íbúum á starfssvæðinu verður boðið að mæta, skoða tækjakostinn og…Lesa meira