
ÍA vann Grindavík í Lengjubikarnum
ÍA og Grindavík mættust í riðli 1 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í hádeginu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Ekkert var skorað í fyrri hálfleik og fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á 79. mínútu. Þar var að verki Ármann Ingi Finnbogason sem fékk boltann á hægri kantinum, fór fram hjá varnarmanni Grindavíkur við endalínuna og setti hann með vinstra fæti undir markmann gestanna og í netið. Skagamenn tryggðu svo sigurinn þremur mínútum síðar þegar Gísli Laxdal Unnarsson sendi boltann eftir góðan sprett fyrir og þar þrumaði hinn ungi og efnilegi Daniel Ingi Jóhannesson sem er á sextánda ári boltanum í markið. Lokatölur 2-0 fyrir ÍA og Skagamenn eru með sex stig í riðlinum eins og HK eftir fjóra leiki en Valur er efstur með tólf stig og KR í öðru sæti með níu stig.