Hluti björgunarsveitarfólks í Ok sem skoðaðið nýja bílinn í gær. Ljósm. mm

Björgunarsveitin Ok bætir öflugum og tæknilega fullkomnum bíl í flotann

Í gær bættist nýr bíll í flota Björgunarsveitarinnar Oks í Borgarfirði. Var félagsmönnum af því tilefni boðið í kjötsúpu í hádeginu og bíllinn sýndur. Nú í vor, eða laugardaginn 6. maí, stefnir björgunarsveitin síðan á að hafa opið hús í Þorsteinsbúð í Reykholti þangað sem íbúum á starfssvæðinu verður boðið að mæta, skoða tækjakostinn og þiggja veitingar. Íbúar hafa, að sögn Jóhannesar Berg formanns björgunarsveitarinnar, ætíð stutt dyggilega við sveitina í fjáröflunum og með öðrum hætti. Opið hús vilja Okverjar hafa til að sýna þakklætisvott fyrir veittan stuðning í gegnum tíðina og kynna um leið starfsemina. Jóhannes gat þess einnig að sveitin skuldaði ekki þrátt fyrir þessa fjárfestinga, en lítið væri eftir í sjóðum hennar. Búið hafi verið að safna í tækjakaupasjóð, en verulega fékkst í hann með þátttöku björgunarsveitarinnar í vöktum á gosstöðvunum á Reykjanesi, en fyrir að standa gosvaktirnar í báðum eldgosunum fékk björgunarsveitin OK um 8,5 milljónir króna.