
Þorsteinn Sveinsson og Guðni Guðnason voru kampakátir í eldhúsinu. Ljósmyndir: TFK
Kútmagakvöld Lions í Grundarfirði – myndasyrpa
Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir hinu árlega Kútmagakvöldi síðasta laugardagskvöld. Góð mæting var í veisluna enda kræsingarnar glæsilegar að vanda. Að þessu sinni var verið að safna fyrir sauna aðstöðu við Sundlaug Grundarfjarðar en það hefur vantað í nokkur ár síðan gamli saunaklefinn var aflagður. Það er sérstaklega hjálplegt fyrir Slökkvilið Grundarfjarðar að hafa aðgang að slíkum klefa enda nauðsynlegt að getað hreinsað húðina eftir að hafa verið í eitruðum gufum sem myndast við eldsvoða.