Fréttir

true

Aukinn kraftur settur í leit um helgina

Allt frá því á þriðjudag hefur víðtæk leit staðið yfir í Borgarnesi og nágrenni að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni, sem ekkert hefur spurst til síðan laugardaginn 7. janúar. Yfir sextíu sjálfboðaliðar björgunarsveita hafa komið að leitinni og við hana notast m.a. við þyrlur Landhelgisgæslunnar, dróna, fjórhjól, báta og önnur tæki og búnað. Auk þess…Lesa meira

true

Rut Berg Guðmundsdóttir nýr aðstoðarskólastjóri

Rut Berg Guðmundsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hún tekur við starfinu af Birgi Þórissyni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Tónlistarskólans. Rut var áður nemandi skólans og útskrifaðist með framhaldspróf á flautu frá skólanum árið 2005. Þá lauk hún B.Mus prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Rut hefur kennt við…Lesa meira

true

Aulahúmor og útúrsnúningar af öllu landinu

Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna) á Sögulofti Landnámsseturs Uppistandssýningin „Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna)“ verður frumsýnd á Sögulofti Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi laugardaginn 14. janúar. Forsagan er sú að árið 1752 fengu vísindamennirnir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson styrk frá danska ríkinu til að rannsaka jarðfræði Íslands, sögu, mannlíf…Lesa meira

true

Íbúar í og við Borgarnes beðnir að leita í nærumhverfinu

Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir aðstoð íbúa í Borgarnesi og nágrenni. Í tilkynningu segir: „Vegna leitarinnar að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni, sem saknað hefur verið síðan á laugardag, biðjum við íbúa í Borgarnesi og nágrenni að skoða sitt nærumhverfi, garða og geymslur. Einnig upptökur frá laugardeginum ef fólk er með myndavélakerfi við húsin. Vinsamlegast…Lesa meira

true

Þrívíddaprentaði perluskammtara fyrir leikskóla

Bastian Orri Claes er 16 ára menntskælingur frá Rauðanesi 2 á Mýrum. Hann er á sínu fyrsta ári á starfsbraut við Menntaskóla Borgarfjarðar og starfar við Leikskólann Ugluklett í Borgarnesi tvo daga í viku. Á Uglukletti varð Bastian þess var að kennarar skólans voru oft að fylla á perlubirgðir barnanna en í framhaldinu hóf hann…Lesa meira

true

Gatna- og veituframkvæmdir að hefjast í Skógarhverfi á Akranesi

Nú eru að hefjast gatna- og veituframkvæmdir við nýtt Skógarhverfi á Akranesi, þ.e. hluta 3C og 5 samkvæmt skipulagi. Að framkvæmdinni standa Akraneskaupstaður, Veitur, Míla og Ljósleiðarinn. Verktaki er Borgarverk ehf. Fram kemur í tilkynningu frá Veitum að í upphafi framkvæmda verður gerður vinnuvegur inn á svæði út frá Akranesvegi, skammt frá vindhraðaskilti Vegagerðarinnar. Þessar…Lesa meira

true

FVA í 16 liða úrslit Gettu betur

Í gærkvöldi lauk fyrstu umferð spurningakeppninnar Gettu betur í Ríkisútvarpinu þar sem 25 framhaldsskólar mættu til leiks. Nú liggur því fyrir hvaða skólar taka þátt í sextán liða úrslitum. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi komst þar áfram með því að vera næst stigahæsta taplið fyrstu umferðar, en þrjú stigahæstu tapliðin komust áfram. Lið FVA skipa þau…Lesa meira

true

Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar 2023 lögð fram

Á fundi bæjarstjórnar Akraness á þriðjudaginn var til ákvörðunar árleg húsnæðisáætlun kaupstaðarins. Hún hafði verið lögð til kynningar fyrir skóla- og frístundasvið, velferðar- og mannréttindaráð og skipulags- og umhverfisráð og samþykkti bæjarstjórn húsnæðisáætlunina. Húsnæðisáætlun tekur á fjölmörgum þáttum er snerta skipulag og byggingar og því kennir þar margra grasa. Hér er það helsta sem kemur…Lesa meira

true

Skoða botninn á Björgu

Í gærmorgun var björgunarskipið Björg tekið upp á þurrt land með gámalyftara frá Smiðjunni Fönix í Rifi. Halldór Kristinsson skipstjóri á Björgu sagði í samtali við Skessuhorn að nú ætti að botnskoða bátinn en það þarf að gera annað hvert ár. „Með því að taka bátinn á land með lyftara spörum við siglingu inn í…Lesa meira

true

Rúmum milljarði úthlutað til aukins samstarfs háskóla

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að úthluta tæplega 1,2 milljarði króna til aukins samstarfs háskóla með það að markmiði að auka gæði námsins og samkeppnishæfni skólanna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. „Hugmyndin var kynnt í haust og brugðust allir 7 háskólarnir við ásamt 37 öðrum samstarfsaðilum. 48 umsóknir bárust og sótt…Lesa meira