
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra úthlutaði í gær um 577 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 53 verkefni styrk en 177 umsóknir bárust til sjóðsins. Matvælasjóður veitir styrki í fjórum styrkjaflokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóði. Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkþegar geta verið fyrirtæki sem stofnuð eru á síðustu fimm árum. Einnig frumkvöðlar sem vilja þróa…Lesa meira








