
Bætt aðgengi að lífsbjargandi lyfi við ofskömmtun ópíóða
Lyf á nefúðaformi sem inniheldur naloxón getur reynst lífsbjargandi sem fyrstu viðbrögð við ofskömmtun ópíóíða. Breytt fyrirkomulag við afhendingu lyfsins hefur bætt til muna aðgengi að lyfinu um allt land, einstaklingum að kostnaðarlausu. Dæmi um lyf/efni sem innihalda ópíóíða eru heróín, metadon, fentanýl, oxýkódon, búprenorfín og morfín.