Fréttir

true

Lagafrumvarp um tónlist samþykkt

Í fyrsta sinn á Íslandi hefur frumvarp til laga um tónlist og tónlistarstefnu verið samþykkt. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir í tilkynningu þessa heildarlöggjöf tónlistar marka mikil tímamót en löggjöfin mun koma til með að efla umgjörð fyrir sköpun og flutning tónlistar á Íslandi sem og að skapa tónlistargeiranum hagstæð skilyrði.Lesa meira

true

Misserisverkefni standa yfir á Bifröst fyrri hluta næstu viku

Eitt af aðalsmerkjum BA og BS náms við Háskólann á Bifröst eru misserisverkefni, eða Missó, sem nemendur vinna að í 4-6 manna hópum tvisvar sinnum á námsferli sínum. Á meðal áhugaverðra rannsóknarefna nú má nefna áhrif uppsveiflu stýrivaxta Seðlabanka Íslands á greiðslubyrði lána sem tekin voru 2021, viðbrögð auglýsenda við því að útgáfu Fréttablaðsins var…Lesa meira

true

Laugargerðisskóla lokað – Samið við Stykkishólm

Á fundi sínum 4. maí síðastliðinn samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms samninga við Eyja- og Miklaholtshrepp um að veita börnum með lögheimili í hreppnum skólaþjónustu, þ.e. leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Hafa formlegar viðræður milli sveitarfélaganna um skólaþjónustu verið í gangi síðan í lok febrúar á þessu ári. Segir í tilkynningu á vef Stykkishólms að um sé…Lesa meira

true

„Hef notið hverrar stundar frá því ég hóf að þjálfa liðið“

Skallagrímur úr Borgarnesi keppti á dögunum við lið Hamars úr Hveragerði í fimm leikja einvígi um eitt laust sæti í Subway deild karla í körfuknattleik. Eftir mikla baráttu unnu Hamarsmenn einvígið í úrslitaleik og komust þar með upp í efstu deild á kostnað Skallagríms. Atli Aðalsteinsson var þjálfari liðsins í vetur ásamt aðstoðarmanni sínum Hafþóri…Lesa meira

true

Tónleikar í Borgarneskirkju á laugardag

Laugardaginn 13. maí verða haldnir tónleikar í Borgarneskirkju til styrktar Píeta samtökunum. Það eru Fósturvísarnir sem halda tónleikana og syngja þar létt lög í bland við önnur en Fósturvísarnir eru tólf menn úr karlakórnum Fóstbræðrum. Fósturvísarnir hafa starfað saman síðan 2017 og segir Stefán Már Sturluson meðlimur kórsins að þeir syngi ekki endilega þessa hefðbundnu…Lesa meira

true

Hlaupin veita mér ánægju og gleði

Skagamaðurinn Guðjón Ingi Sigurðsson bar sigur úr býtum í hlaupakeppninni Bakgarður 101 sem fram fór í Öskjuhlíð í Reykjavík nýverið. 150 manns hófu keppni í hlaupinu þar til einn stóð eftir. Guðjón hljóp alls 207,7 km en hann hljóp 31 hring og var í harðri baráttu undir lokin við hlauparann Kristinn Gunnar. Reglurnar eru þannig…Lesa meira

true

Ný vatnsrennibraut sett upp við sundlaugina í Ólafsvík

Snæfellsbær hefur fest kaup á vatnsrennibraut sem verður sett upp við sundlaugina í Ólafsvík í sumar. Rennibrautin verður vegleg, um sjö metrar að hæð og 54 metrar að lengd, og kemur frá traustum og öruggum framleiðanda, Polin Waterparks. Fram kemur á heimasíðu Snæfellsbæjar að framkvæmdir við jarðvegsvinnu og undirstöður rennibrautarinnar séu þegar hafnar og gangi…Lesa meira

true

Ísgöngin í Langjökli þarfnast viðhalds á hverju ári – MYNDASYRPA

Undanfarin átta ár hafa ísgöngin í vestanverðum Langjökli laðað að þúsundir gesta á hverju ári og mikil umsetning verið í kringum starfsemi fyrirtækisins Into the glacier. Boðið er upp á hópferðir tvisvar til þrisvar á dag frá Reykjavík og Húsafelli, en síðasta spölinn frá Húsafelli er farið á sérbyggðum jöklatrukkum sem taka flestir um fjörutíu…Lesa meira

true

Dregið í Bikarkeppni neðri deilda í knattspyrnu

Dregið var í fyrstu umferð Fótbolti.net bikarsins í dag en um er að ræða nýja keppni, bikarkeppni neðri deilda karla. Keppnin er haldin í fyrsta skipti og geta lið í 2., 3. og 4. deild tekið þátt. 31 félag er skráð í keppnina í ár en úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli. Víkingur Ólafsvík sem leikur…Lesa meira

true

Eitt tilboð barst í byggingu íþróttahúss við Heiðarborg

Tilboð í byggingu íþróttahúss við Heiðarborg við Leirá í Hvalfjarðarsveit voru opnuð föstudaginn 28. apríl. Eitt tilboð barst í verkið, frá GG verk ehf. og hljóðaði það upp á rúmlega 1,7 milljarð króna. Er það 41% yfir kostnaðaráætlun hönnuða en í verkinu felst bygging og fullnaðarfrágangur á keppnissal, búningsklefum og öðru rými ásamt lóð umhverfis…Lesa meira