
Lið Kára fékk útileik á móti KF. Ljósm. FB síða Kára
Dregið í Bikarkeppni neðri deilda í knattspyrnu
Dregið var í fyrstu umferð Fótbolti.net bikarsins í dag en um er að ræða nýja keppni, bikarkeppni neðri deilda karla. Keppnin er haldin í fyrsta skipti og geta lið í 2., 3. og 4. deild tekið þátt. 31 félag er skráð í keppnina í ár en úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli.