
Ísgöngin í Langjökli þarfnast viðhalds á hverju ári – MYNDASYRPA
Undanfarin átta ár hafa ísgöngin í vestanverðum Langjökli laðað að þúsundir gesta á hverju ári og mikil umsetning verið í kringum starfsemi fyrirtækisins Into the glacier. Boðið er upp á hópferðir tvisvar til þrisvar á dag frá Reykjavík og Húsafelli, en síðasta spölinn frá Húsafelli er farið á sérbyggðum jöklatrukkum sem taka flestir um fjörutíu farþega í sæti. Leiðsögn er síðan í öllum tilfellum þegar farið er ofan í ísgöngin, enda þarf að fara þar um með gát. Aðsóknin í ísgöngin hefur frá fyrsta degi verið umfram væntingar fyrirtækisins. Göngin hafa sannanlega reynst kærkomin viðbót í afþreyingarflóru vaxandi atvinnugreinar sem ferðaþjónustan er og margir sem vilja kynna sér leyndardóma jökulsins. En ísgöngin í Langjökli eru að öllu leyti manngerð. Bakvið verklega framkvæmd innan dyra eru borgfirskir verktakar sem allt frá upphafi framkvæmda árið 2014 hafa starfað fyrir Into the glacier. Í forsvari í þeirri vinnu eru viðskiptafélagar og sveitungar úr Reykholtsdal, þeir Gunnar Konráðsson húsasmíðameistari og Einar Steinþór Traustason vélaverktaki. Blaðamaður Skessuhorns hitti þá félaga að máli eitt kvöld í liðinni viku og fór niður í göngin til að fræðast um viðhald og vinnu við ísgöngin.