Fréttir

true

Ráðið í stöðu skólastjóra og forstöðumanns öldrunarþjónustu í Stykkishólmi

Á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms síðdegis í dag var kynnt og tekin til afgreiðslu ráðning í tvær lykilstöður í sveitarfélaginu. Báðar byggja ákvarðanir bæjarstjórnar á niðurstöðu ráðgjafa Attentus og hæfnisnefndar sem taldi þá umsækjendur sem ráðnir voru best mæta þeim kröfum sem gerðar voru í auglýsingum um starfið. Heimir Eyvindarson var ráðinn í stöðu skólastjóra…Lesa meira

true

Minnt á næturlokun í göngunum

Vegna viðhaldsvinnu og þrifa verða Hvalfjarðargöng lokuð næstu nótt frá miðnætti og til klukkan 06:30 í fyrramálið. Er það þriðja nóttin í röð sem hreinsun ganganna stendur yfir. Því verða ökumenn að aka fyrir Hvalfjörð á þessum tíma. “Ekki verður um fylgdarakstur að ræða. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að…Lesa meira

true

Mikið fjör á dimmiteringu í FSN

Væntanlegir útskriftarnemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði gera sér glaðan dag í tilefni af tilvonandi útskrift. Dimmiteringin fór vel fram og venju samkvæmt buðu kennarar og starfsfólk skólans nemendum í vöfflukaffi á kaffistofu starfsmanna. Svo var farið í leiki og hefðbundið skólastarf brotið upp.Lesa meira

true

Innkalla sælgæti vegna lítilla málmflísa

Matvælastofnun vill vara við neyslu á vissum framleiðsludagsetningum af Haribo Click Mix, Stjerne Mix og Sutterskum sem Danól flytur inn, vegna aðskoðahluta sem geta verið í sælgætinu. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna af markaði. Sala á þessum tegundum af sælgætinu var í: Bónus, Hagkaupum, Fjarðarkaupum, Heimkaupum, Nettó, Kjörbúðinni, Krambúðinni Extra, Melabúðinni,…Lesa meira

true

Ný stjórn í Félagi kvenna í atvinnulífinu

Aðalfundur Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, var haldinn á Nauthóli miðvikudaginn 10. maí. Á fundinum tók ný stjórn við í félaginu en fram undan er 25 ára afmæli þess. Unnur Elva Arnardóttir, forstöðumaður hjá Skeljungi, er nýr formaður FKA. Stjórnarkonurnar Guðrún Gunnarsdóttir hjá Fastus og Dóra Eyland hjá GR eru hálfnaðar með kjörtímabil sitt í…Lesa meira

true

Foreldrar halda sínu striki

Síðdegis í dag verður fundur í sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps þar sem tekið verður fyrir erindi frá Eggerti Kjartanssyni fyrir hönd óstofnaðs ehf., sem foreldrar barna í Laugargerðisskóla munu stofna, um drög að þjónustusamningi vegna Laugargerðisskóla og drög að húsaleigusamningi um atvinnuhúsnæði. Segir Eggert Kjartansson það engu breyta að hreppurinn hafi þegar gert samning við…Lesa meira

true

Flutningaskip lestað súráli við mynni Hvalfjarðar

Það dugði ekki minna en tvo lóðsbáta frá Faxaflóahöfnum til að fylgja hinu stórvaxna flutningaskipi Ultra Spirit inn til hafnar á Grundartanga síðdegis í gær. Það hefur sýnt sig að undanförnu að betra er að flutningaskipunum sé siglt eftir réttum leiðum. Skipið var lestað súráli. Það er einungis ársgamalt, gert út af flutningafyrirtækinu Ultrabulk í…Lesa meira

true

Vilja að MAST og ráðuneytið axli ábyrgð á girðingum

Sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshreppps fjallaði um ástand sauðfjárveikivarnagirðinga á fundi sínum 3. maí síðastliðinn. Umræður urðu um sauðfjárveikivarnir og sauðfjárveikivarnargirðingu sem liggur í gegnum sveitarfélagið, á milli varnarhólfs 3 Snæfellsneshólfs og varnarhólfs 2 Vesturlandshólfs. Rætt var um ástand girðingarinnar, sem liggur á milli Hausthúsafjara og Álftafjarðar. Veruleg þörf er á endurnýjun og endurbótum á girðingunni.…Lesa meira

true

Laddi og Magni í Bíóhöllinni

Föstudaginn 19. maí nk. mun Þórhallur Sigurðsson, Laddi, stíga á stokk í Bíóhöllinni á Akranesi með veglega söng- og skemmtidagskrá. Honum til halds og trausts verður Hljómsveit mannanna sem m.a. er skipuð Magna Ásgeirssyni söngvara og gítarleikara. „Lögin sem Laddi hefur samið og sungið í gegnum tíðina skipta tugum ef ekki hundruðum. Lög sem hafa…Lesa meira

true

Opið hús á Hvanneyri á laugardaginn

Laugardaginn 13. maí verður opið hús á Hvanneyri milli klukkan 13 og 15 þar sem hægt verður að kynna sér allar námsleiðir Landbúnaðarháskóla Íslands til hlítar. Aðalbygging skólans verður opin og hægt verður að spjalla við starfsfólk og nemendur og fá nánari upplýsingar um námið og lífið í LbhÍ. „LBHÍ leggur ríka áherslu á fjölbreytt…Lesa meira