Frá Stykkishólmi. Ljósm. gj.

Ráðið í stöðu skólastjóra og forstöðumanns öldrunarþjónustu í Stykkishólmi

Á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms síðdegis í dag var kynnt og tekin til afgreiðslu ráðning í tvær lykilstöður í sveitarfélaginu. Báðar byggja ákvarðanir bæjarstjórnar á niðurstöðu ráðgjafa Attentus og hæfnisnefndar sem taldi þá umsækjendur sem ráðnir voru best mæta þeim kröfum sem gerðar voru í auglýsingum um starfið. Heimir Eyvindarson var ráðinn í stöðu skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi og Tónlistarskóla Stykkishólms. Þá var sömuleiðis gengið frá ráðningu Rannveigar Ernudóttur í nýja stöðu forstöðumanns miðstöðvar öldrunarþjónustu í Stykkishólmi. Hlutverk Rannveigar sem forstöðumanns verður að stýra nýrri miðstöð öldrunarþjónustu sem mun vera staðsett við Skólastíg 14 í Stykkishólmi. Hún mun leiða stofnun nýs sviðs öldrunar og stoðþjónustu í sveitarfélaginu og innleiðingu á stefnumörkun starfshóps um þjónustu við einstaklinga 60 ára og eldri. Með stofnun miðstöðvarinnar ætlar Sveitarfélagið Stykkishólmur að taka fyrsta skrefið í að vinna markvisst að því að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu.

Ráðið í stöðu skólastjóra og forstöðumanns öldrunarþjónustu í Stykkishólmi - Skessuhorn