Hvalfjarðargöng. Ljósm. Skessuhorn

Minnt á næturlokun í göngunum

Vegna viðhaldsvinnu og þrifa verða Hvalfjarðargöng lokuð næstu nótt frá miðnætti og til klukkan 06:30 í fyrramálið. Er það þriðja nóttin í röð sem hreinsun ganganna stendur yfir. Því verða ökumenn að aka fyrir Hvalfjörð á þessum tíma. "Ekki verður um fylgdarakstur að ræða. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningu sem finna má inni á vef Vegagerðarinnar.

Minnt á næturlokun í göngunum - Skessuhorn